Ótrúlega töff bekkur í anda gamla fimleikahestsins. Allt handverkið er gróft og hrátt og þessi verður bara fallegri með aldrinu. Fæturnir eru úr gegnheilum við og er hann mjög stöðugur. Sómir sér vel hvar sem er á heimilinu.
Leðrið er handmálað upp á gamla mátann og mun því springa með tíma og notkun og fá á sig eftirsóknarverða gamaldags áferð (patina).
Efni : Leður/ Viður
Litur: Brúnn
Mál: H: 48 cm B: 132 cm D: 38 cm